HANSEN GARMENTS

HANSEN GARMENTS


“VIÐ TRÚUM Á LITLA FATASKÁPA OG STÓRA PERSÓNULEIKA.” - Hansen

Þeir sem hafa heimsótt verslun okkar í gegnum árin ættu að þekkja vörurnar frá dönsku vinum okkar hjá HANSEN. HANSEN var stofnað í Kaupmannahöfn árið 2010 af norska fatahönnuðinum Aase Hansen og danska viðskiptamanninum Per Chrois Christensen. Hugmyndafræði HANSEN er byggð á því að stofna til sterkra og persónulegra tengsla við samstarfsaðila og viðskiptavini.

Fötin eru innblásin af norrænni klæðahefð og leggja þau sig fram við að framleiða þægileg og vönduð hversdagsföt úr fyrsta flokks efnum. Efnin eru sérvalin frá ítölskum og japönskum efnaframleiðendum og fötin eru öll saumuð innan Evrópu. Minni atriði eins og tölur eru úr vönduðum efnum t.d. perlumóður, horni eða málmi.

Það sem hefur alltaf heillað okkur hjá Kormáki & Skildi við fötin frá HANSEN er hversu vönduð og falleg þau eru en samt hversdagsleg og afslöppuð. Fyrr á árum vann fólk öll möguleg störf í jakkafötum, hvort sem það var verið að leggja vegi eða vinna í verslun. Það að eiga vönduð jakkaföt til að skella sér í á þriðjudegi og takast á við daginn er mikill lúxus.

 

Það hefur myndast mikil og sterk vinátta á milli okkar og fólksins á bak við HANSEN og hefur í gegnum árin myndast traustur hópur aðdáenda merkisins hér á landi. Enda kunna íslendingar vel að meta afslappaðan stílinn og vandað handverkið. SKOÐAÐU ÚRVALIÐ FRÁ HANSEN HÉR

« Back to Blog

TOP OF PAGE